Fjölnisstafsetningin

Ritstjóri: Ari Páll Kristinsson

SKU: U201702

ISBN: 978-9979-654-37-7

3,900 kr.
availability: In Stock

  • Útgáfuform

Description

Árið 1836 birtist í ársritinu Fjölni löng grein sem boðaði róttækar breytingar á íslenskri stafsetningu. Henni til grundvallar skyldi leggja framburð samtímamálsins og kallaði höfundur þá reglu einkareglu stafsetningarinnar. Þessar nýjungar voru innleiddar smám saman í næstu árgöngum ritsins, en þrátt fyrir skeleggan málflutning af hálfu Fjölnis náðu breytingarnar ekki að festa rætur; frá og með 7. árgangi, 1844, var nýja stafsetningin horfin. Í samtíma sendibréfum má sjá að embættismenn og fræðimenn voru þessum nýjungum andvígir og þær voru harðlega gagnrýndar í mánaðarritinu Sunnanpóstinum. Fjölnisstafsetningunni var einkum fundið til foráttu að framburðarreglunni væri haldið til streitu, hver færi því að skrifa eftir eigin eyra og útkoman yrði glundroði. Andmælendur breytinganna bentu enn fremur á að íslenskan ætti sér margra alda rithefð sem engin ástæða væri til að umbylta heldur mætti samræma þar sem óreiða væri komin á. Sveinbjörn Egilsson, sem verið hafði kennari útgefenda Fjölnis, samdi tvær ritgerðir þar sem hann gagnrýndi Fjölnisstafsetningunna harðlega. Ritgerðir Sveinbjarnar eru prentaðar í fyrsta sinn í þessari bók. Hér eru enn fremur prentaðar greinar úr ritum frá þessum tíma þar sem tekist var á um íslenska stafsetningu. Meginágreiningsefnin eru skýrð í inngangi. Gunnlaugur Ingólfsson bjó bókina til prentunar.

  • Blaðsíðufjöldi: 130
  • Útgáfuár: 2017
  • Fag: Málvísindi

Oops!

Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.

OK