Frá Hjara Veraldar
Höfundur:
Þýðandi:
Description
Melitta Urbancic (1902-1984) leitaði hælis á Íslandi árið 1938 ásamt eiginmanni sínum, tónvísindamanninum, tónskáldinu og hljómsveitarstjóranum Victor Urbancic (1903-1958) og börnum þeirra. Fjölskyldan fluttist hingað frá heimalandinu, Austurríki, eftir valdatöku nasista, en Melitta var af gyðingaættum. Hjónin mörkuðu varanleg spor í menningarlíf Íslendinga með framlagi sínu til listalífsins í landinu. Melitta Urbancic lagði stund á heimspeki og germönsk málvísindi við háskólann í Vínarborg og Ruprecht-Karls háskólann í Heidelberg. Hún lauk doktorsgráðu í Heidelberg með rannsókn sinni á verkum skáldsins Christian Dietrich Grabbe. Meðfram háskólanáminu stefndi hún á feril sem leikkona og fékk fyrsta ráðningarsamning sinn við leikhúsið í Koblenz undir listamannsnafninu Makarska. Hún hafði einnig áhuga á sviðum leikstjórnar og leikbókmennta.
- Fag: Erlend tungumál
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 217
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.