Framtíðarmúsík
Ritstjóri:
This product is not available in the selected currency.
In Stock
Backordered
Out of Stock
Description
Síðastliðna tvo áratugi hefur orðið mikil gerjun og endurnýjun á sviði tónlistarmenntunar. Nýjar aðferðir og ný viðmið hafa rutt sér rúms í tónlistar- og tónmenntakennslu og tónlistarskólar leitast eftir auknu samstarfi við ólík skólastig.
Þessi bók inniheldur tólf greinar sem byggðar eru á nýjum rannsóknum og þróunarverkefnum tengdum tónlistarmenntun og tónlistarmiðlun. Bakgrunnur höfunda er margvíslegur auk þess sem þeir starfa á ólíkum sviðum tónlistarmenntunar. Þeir eru tónmenntakennarar í grunnskóla, hljóðfærakennarar við tónlistarskóla og kennarar við Listaháskóla Íslands. Þannig eru greinahöfundar ekki einungis fulltrúar ólíkra skólaforma heldur einnig ólíkra skólastiga.
Bókin er gefin út á vegum Rannsóknarstofu í listkennslufræðum, sem starfar undir hatti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, í samstarfi Háskólaútgáfuna. Fullyrða má að hún sé fyrsta bók sem gefin er út á íslensku um náms- og kennsluhætti í tónlistarnámi og fengur fyrir alla þá sem áhuga hafa á tónlistarmenntun á Íslandi.
- Blaðsíðufjöldi: 250
- Útgáfuár: 2018
- Fag: Listkennslufræði
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.