Gripla XXVIII
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
In Stock
Backordered
Out of Stock
Description
Gripla 2017 inniheldur átta fræðigreinar (fjórar á íslensku og fjórar á ensku) og eina textaútgáfu. Viðfangsefni greinanna er fjölbreytt og tilheyrir mörgum sviðum: þjóðfræði, bókmenntafræði, handritafræði, svo og sögu íslensks máls.
Ritrýndar greinar eru eftir Romina Werth og Aðalheiði Guðmundsdóttur, sem fjalla um framlag kvenna til söfnunar þjóðsagna á Austurlandi; Joanne Shortt Butler, sem skrifar um sagnapersónuna Þorstein Kuggason og ímyndunarafl höfunda Íslendingasagna; Þórdísi Eddu Jóhannesdóttur, sem skoðar gerðir Jómsvíkinga sögu í miðaldahandritum; Rebecca Merkelbach, sem notar hugtök um skrímsli til að túlka Grettis sögu Ásmundarsonar og einkenni Grettis og annarra útlaga í Íslendingasögum; Aðalstein Hákonarson, sem fjallar um ritun og framburð orða eins og fé, mér og sér í ljósi athugasemda Brynjólfs Sveinssonar frá árinu 1651; Stefan Drechsler, sem skoðar myndskreytingar handrita á vestanverðu Íslandi á 13. öld og í upphafi 14. aldar; og Natalie M. Van Deusen, sem gefur út texta kvæðisins „Sprundahrós“, varðveittan í pappírshandritunum ÍB 850 8vo, JS 255 4to og JS 589 4to, ásamt inngangi.
Í heftinu er að auki grein um samtöl í Íslendingasögum eftir Theodore M. Andersson. Þar má einnig finna grein eftir Má Jónsson um þeta-brotið (AM 162 B fol. θ) og glataða Gullskinnu-handritið af Njáls sögu.
- Blaðsíðufjöldi: 262
- Útgáfuár: 2017
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.