Hugvekjur um söfn og samfélag

Höfundur: Sigurjón Baldur Hafsteinsson

SKU: U202616

ISBN: 978-9935-23-369-1

6,900 kr.
availability: In Stock

  • Útgáfuform

Description

Hvað þarf til að bjarga sögu og menningu íslensks samfélags frá glötun? Árið 1862 sendi Sigurður „málari" Guðmundsson frá sér hugvekju til Íslendinga um að standa vörð um minjar þjóðarinnar. Ári síðar varð Forngripasafnið til og þar með fyrsti vísir að söfnum á Íslandi. Meira en einni og hálfri öld síðar kallar sambandið milli safna og samfélags á nýjar hugvekjur.

Bókin dregur lesandann inn í heim safna sem er bæði margbrotnari og forvitnilegri en margur gerir sér í hugarlund, allt frá ákalli Sigurðar málara um að varðveita íslenskar minjar til samtímaspurninga um eignarhald, réttlæti, menntun og sjálfbærni. Hér er fjallað um söfn sem lifandi og valdamiklar stofnanir sem móta hvernig íslenskt samféleg skilur sjálft sig.

Höfundur byggir á rúmlega þrjátíu ára reynslu sinni af safnastarfi, sem starfsmaður og stjórnandi safna, og sem fræðimaður. Þetta eru þar með ekki eingöngu fræðilegar pælingar, heldur einnig persónuleg afstaða og reynsla manns sem hefur starfað innan þeirra stofnana sem hann fjallar um.

Hér er um að ræða ögrandi sýn þar sem höfundur teflir fram gagnrýnum viðhorfum sem fá lesandann til að staldra við og endurskoða viðteknar hugmyndir um erindi, hlutverk og ábyrgð safna í nútímasamfélagi.

Sigurjón Baldur Hafsteinsson er prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands.

  • Útgáfuár: 2026
  • Fag: Safnafræði
  • Blaðsíðufjöldi: 242

Oops!

Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.

OK