Íslenskt lýðræði
This product is not available in the selected currency.
In Stock
Backordered
Out of Stock
Description
Eftir hrun bankanna 2008 hefur verið kreppa í íslenskum stjórnmálum. Í lýðræðisumræðu hefur mikil áhersla verið lögð á að auka þátttöku borg aranna en minna hefur verið skoðað hvernig styrkja megi fulltrúalýð ræðið. Í þessari bók er kastljósinu beint að starfsháttum og stefnumótun í stjórnmálum í ljósi hugmynda rökræðulýðræðis. Kannað er hvaða skilningur er ríkjandi á lýðræði hérlendis og hvernig hann birtist í stjórn siðum, hugmyndum um lýðræðislega ábyrgð, fjölmiðlun, menntunar áformum og pólitískri umræðu. Bæði er horft til þess hvað einkenndi íslenska stjórnarhætti í aðdraganda hrunsins og þær lýðræðistilraunir sem gerðar hafa verið eftir hrun. Færð eru rök fyrir því að brýnasta verk efnið sé að styrkja lýðræðislegar stofnanir og bæta stjórnsiði.
Í bókinni fléttast saman fræðileg sjónarhorn hugvísinda og félagsvís inda, heimspekileg hugtakagreining, sagnfræðileg rýni og empírískar athuganir. Þessi aðferð, ásamt því að skoða lýðræði út frá vinnubrögð um og stjórnsiðum fremur en þátttöku borgaranna, er nýmæli í rann sóknum á íslensku lýðræði eftir hrun. Niðurstöðurnar gætu nýst í mati á styrkleikum og veikleikum íslenskra stjórnmála og stjórnsýslu, hvernig styrkja megi lýðræðislega innviði samfélagsins og rökræðustoðir stjórn málanna og efla lýðræðismenntun borgaranna.
Bókin er mikilvægt framlag til þess brýna verkefnis að bæta lýðræðis lega stjórnarhætti svo endurheimta megi traust á íslenskum stjórn málum og stofnunum lýðræðissamfélagsins.
- Útgáfuár: 2018
- Blaðsíðufjöldi: 308
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.