Jarðvegur - Myndun, vist og nýting
This product is not available in the selected currency.
In Stock
Backordered
Out of Stock
Description
Jarðvegur er hvarvetna ein af undirstöðum búsetu en oft hefur jarðvegur landa eða landsvæða mikla sérstöðu og það á til dæmis við um Ísland. Bókin er í senn almennt fræðirit um íslenskan jarðveg þar sem leitast er við að vitna í nær allar heimildir þar sem fjallað hefur verið um íslenskan jarðveg á seinustu áratugum og um leið grundvallarrit til kennslu í jarðvegsfræði á háskólastigi.
Í bókinni er í meginatriðum fjallað um eftirfarandi efni:
Jarðvegsmyndun og tengsl við umhverfið
Eðliseiginleika jarðvegs
Næringarefni
Ræktun og landnýtingu
Álag á jarðveg
Flokkun jarðvegs, bæði innlenda og alþjóðlega
Mat á jarðvegi og landi
Bókin er handhægt og aðgengilegt uppsláttarrit fyrir þá sem koma að ákvörðunartöku um skipulag og nýtingu lands og fyrir alla sem hafa áhuga á náttúru landsins.
Þorsteinn Guðmundsson er doktor í jarðvegsfræði frá háskólanum í Aberdeen og var kennari og síðan prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Áður starfaði hann við háskólann í Freiburg og tækniháskólann í Berlín í Þýskalandi.
- Fag: Jarðvísindi
- Blaðsíðufjöldi: 230
- Útgáfuár: 2018
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.