Sögur Belkíns
Höfundur:
Ritstjóri:
Þýðandi:
This product is not available in the selected currency.
In Stock
Backordered
Out of Stock
Description
Auðvelt er að gera sér í hugarlund áhrifin sem Aleksej hlaut að hafa á aðalsmeyjarnar okkar. Hann var fyrsti þungbúni og vonsvikni maðurinn sem þær hittu og sá fyrsti sem sagði þeim af horfinni gleði og fölnaðri æsku. Auk þessa bar hann svartan hring með ágrafinni hauskúpumynd. Allt var þetta fádæma nýstárlegt í umdæminu. Stúlkurnar ætluðu að ganga af göflunum.
Smásagnasafnið Sögur Belkíns, sem kom út árið 1831, er fyrsta prósaverkið sem rússneska þjóðskáldið Aleksander Púshkín sendi frá sér og er fyrir löngu komið í hóp sígildra verka. Höfundur snýr út úr þekktum bókmenntaþemum og skemmtir sjálfum sér og lesendum sínum með fjörugum frásögnum af einvígum, drauga samkomum, misskilningi í ástum og óvæntum endalokum.
Rebekka Þráinsdóttir þýddi | Kristín Guðrún Jónsdóttir ritstýrði
- Fag: Þýðingar, Rússneska
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 148
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.