Stefnur og straumar í siðfræði
Höfundur:
Þýðandi:
Description
Bókin er aðgengilegt inngangsrit í siðfræði. Höfundur gerir grein fyrir meginhugmyndum og kenningum í siðfræði í skýru og einföldu máli og notar fjölda dæma, frásagna og röksemda til að auðvelda lesandanum að skilja viðfangsefnið. Meðal þeirra spurninga sem Rahels tekst á við eru: Er siðferði afstætt miðað við mismunandi menningarsamfélög? Hafa siðferðilegir dómar okkar einhvern sannleika að geyma eða eru þeir aðeins tjáning tilfinninga okkar? Hver eru tengsl trúarbragða og siðferðis? Er fólk í eðli sínu eigingjarnt og ætti það kannski að vera það? Er hamingjan eini endanlegi mælikvarðinn á siðferði? Er líknardráp réttlætanlegt? Eru til ófrávíkjanlegar siðareglur? Hvað þýðir það að sýna öðru fólki virðingu? Hvernig má réttlæta refsingar? Er siðferði reist á samkomulagi? Hvað er dygð? Má einhvern tíma brjóta lögin?
Höfundur, James Rachels, er prófessor í heimspeki við Alabama-háskóla í Birmingham í Bandaríkjunum. Hann er höfundur bókanna The End of Life: Euthanasia and Morality og Created from Animals: The Moral Implications of Darwinism. Jón Á. Kalmansson þýddi bókina.
- Blaðsíðufjöldi: 277
- Útgáfuár: 1997
- Fag: Siðfræði, heimspeki
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.