Tilbrigði III - Sérathuganir
Ritstjórar:
            
    This product is not available in the selected currency.
    In Stock
    Backordered
    Out of Stock
          
        Description
    Þriðja bindi verksins Tilbrigði í íslenskri setningagerð er komið út. Í þessu bindi er fjallað nánar um mörg þeirra tilbrigða sem sagt var frá í fyrri bindum og reynt að skýra eðli þeirra. Þar má nefna orðaröð í aukasetningum, vaxandi notkun vera að með sögnum af ýmsu tagi (sbr. Ég er ekki að skilja þetta), eignarsambönd með forsetningunni hjá (Hundurinn hjá henni dó í gær), frumlagsfall í vesturíslensku (Hann þótti gott í staupinu), verkaskiptingu framsöguháttar og viðtengingarháttar  (Hann spyr hvort hann á að kaupa ...), breytileika í setningagerð fornmáls, þolanlega og óþolandi þolmynd o.s.frv.
Í bókinni eru alls 12 greinar, en einnig sýnishorn af þeim spurningalistum sem voru notaðir í Tilbrigðaverkefninu, ritaskrá og atriðisorðaskrá fyrir öll þrjú bindin. Bókin er 360 síður og ritstjórar eru Höskuldur Þráinsson, Ásgrímur Angantýsson og Einar Freyr Sigurðsson.
  
      - Blaðsíðufjöldi: 360
 - Útgáfuár: 2018
 - Fag: Íslenska
 
Oops!
Sorry, it looks like some products are not available in selected quantity.
