SKILMÁLAR

Skilmálar
Seljandi er Háskóli Íslands, kt. 600169-2039, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi.  Fyrirtækið/stofnunin sérhæfir sig í útgáfu og sölu á bókum og rafbókum. Skilmálar þessir gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á vefversluninni, haskolautgafan.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annarsvegar og kaupanda hinsvegar. Til þess að tryggja rétt bæði kaupanda sem og seljanda höfum við að leiðarljósi lög um persónuvernd, rafræn viðskipti og neytendakaup (lög nr. 77/2000, nr. 30/2002 og nr. 48/2003).

Almennt
Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Ef fram koma fleiri en ein vara á mynd telst söluvaran sú sem fram kemur í vöruheiti eða lýsingu. Háskóli Íslands áskilur sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Vilji kaupandi fá vöru afhenta samdægurs má hafa samband við hu@hi.is eða í síma 525-4003 og munu vörur verða afhentar eftir samkomulagi. Lagerinn er staðsettur í Aðalbyggingu Háskóla Íslands við Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Verð
Öll verð í netversluninni geta breyst án fyrirvara. Það verð gildir sem kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni. Heildarkostnaður við kaup á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun. Hann inniheldur allan kostnað við pöntun s.s. þjónustu, sendingargjad og fl. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Pöntun vöru
Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæði haskolautgafan.is telst hún bindandi milli aðila. Kaupandi fær pöntunarstaðfestingu senda á netfang sem gefið var upp við pöntun. Kaupandi er hvattur til þess að kanna sérstaklega hvort pöntunarstaðfesting hafi borist frá seljanda og hvort hún sé í samræmi við pöntun hans.

Greiðsla
Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa). Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Valitor ehf. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Varan er eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikingsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarrétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist seljanda.

Afhending vöru
Pöntun er send á viðkomandi kaupanda með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar í þeim tilfellum. Háskólaútgáfan ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Íslandspósts. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá seljanda er tjónið á ábyrgð kaupanda. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði vörunnar innanlands en verðskrá Íslandspósts gildir um sendingar til útlanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Hafi kaupandi keypt vöruna í gegnum haskolautgafan.is hefur kaupandi 7 daga til að hætta við kaup á vöru frá því að hann fær hana afhenta að því tilskyldu að henni sé skilað í góðu lagi í órifnum upprunalegum umbúðum. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð hennar. Óski viðskiptavinur eftir að skila vöru er honum bent á að hafa samband við Háskólaútgáfuna á netfangið hu@hi.is. Háskólaútgáfan sendir viðskiptavini kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar og endirgreiðir vöruna við fyrsta tækifæri en aðeins ef kaupandi getur sýnt fram á að varan sé keypt af seljanda. Upphæð endurgreiðslu skal vera sú sem kemur fram á pöntunarstaðfestingu, þó eru flutnings- og póstburðargjöld ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vöru sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavöru sé hún send með póstkröfu.

Galli
Ef vara er gölluð eða eitthvað vantar í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturkall kaupa. Tilkynning á galla verður að berast skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka. Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð er ekki staðfest nema kaupandi geti sýnt fram á að vara sé keypt hjá seljanda. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef rekja má bilun til rangrar meðferðar á vöru.

Trúnaður
Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lögsaga og varnarþing
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Rafbækur
Efnið sem pantað er er höfundarréttarvarið og ekki má dreifa því nema með leyfi höfundar og útgáfunnar. Pdf. skjalið er því upprunamerkt eiganda sínum.
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmálum, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Niðurhalshlekkir eru einungis virkir í 48 klst frá kaupum og einungis er hægt að nota þá í eitt skipti.