Á sömu leið - tengsl leikskóla og grunnskóla

Ritstjórar: Jóhanna Einarsdóttir, Bryndís Garðarsdóttir

Verknúmer: U201337

ISBN: 978-9935-23-022-5

2.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Það eru mikilvæg skref í lífi barna þegar þau hætta í leikskóla og hefja grunnskólagöngu. Á þeim tímamótum hafa börn þegar aflað sér reynslu sem skiptir máli í áframhaldandi námi þeirra. Því er mikilvægt að sú þekking og færni sem þau hafa tileinkað sér í leikskólanum nýtist þeim í grunnskólanum. 

Hvernig er hægt að auka tengslin milli þessara skólastiga og skapa samfellu í námi barna? Þessi spurning er meginumfjöllunarefni bókarinnar Á sömu leið. 

Greint er frá niðurstöðum samstarfsrannsóknar kennara í leik- og grunnskólum og rannsakenda og stúdenta við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknin fór fram í þremur leikskólum og þremur grunnskólum í Reykjavík á árunum 2009–2011. 

Fjallað er um fræðilegan bakgrunn og aðferð rannsóknarinnar, sjónarmið kennaranna sem tóku þátt í henni og hvernig hugmyndir þeirra og leiðir við að nota leik sem námsleið þróuðust meðan á rannsókninni stóð. 

Bókin er ætluð kennaranemum, kennurum í leik- og grunnskólum, þeim sem móta stefnu í skólamálum og öðrum sem láta sig varða menntun ungra barna.

 

  • Útgáfuár: 2013
  • Fag: Menntavísindi
  • Blaðsíðufjöldi: 174

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK