Af sál

Ritstjórar: Andri Steinþór Björnsson, Guðfinna Eydal, Katrín Kristjánsdóttir

Verknúmer: U201602

ISBN: 978-9935-23-109-3

4.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Af sál er gefin út til heiðurs Álfheiði Steinþórsdóttur sálfræðingi á sjötugs afmæli hennar. Í bókinni má finna fjölda greina eftir samstarfsfólk Álfheiðar, vini hennar og fjölskyldu. Efni þeirra er af ýmsum toga. Sumar fjalla greinarnar um Álfheiði sjálfa og lífshlaup hennar. Aðrar taka á mörgum þeim hugðarefnum sem henni hafa verið hugleikin á langri starfsævi svo sem sálrænni meðferð, þroska einstaklingsins og hinu fjölbreytta starfi sálfræðinga á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Álfheiður er frumkvöðull á sviði sálfræði hér á landi. Hún hóf störf á Kleppi, vann um árabil hjá Félagsmálastofnun og stofnaði síðar Sálfræðistöðina ásamt Guðfinnu Eydal. Hún hefur alla tíð sinnt sálrænni meðferð og handleiðslu. Þær Guðfinna hafa enn fremur haldið ótal námskeið og ritað í sameiningu bækur um fræðasvið sitt. Álfheiður er fyrsti handhafi heiðursverðlauna Sálfræðingafélags Íslands.

  • Blaðsíðufjöldi: 314
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: Sálfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK