Afbrot og íslenskt samfélag

Höfundur: Helgi Gunnlaugsson

Verknúmer: U201804

ISBN: 978-9935-23-178-9

4.900 kr.
lagerstaða: Uppselt

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Bókin Afbrot og íslenskt samfélag er innlegg í umræðu um íslenskt samfélag og þróun þess frá sjónarhorni félags– og afbrotafræðinnar. Tilgangur bókarinnar er að koma á framfæri aðgengilegu íslensku lesefni um afbrot á Íslandi og um leið að vekja áhuga og umræður um málefnið. Stuðst er við viðhorfsmælingar, opinber gögn, rýnihópa, fjölmiðla og niðurstöður sem túlkaðar eru í ljósi alþjóðlegs samanburðar. Í bókinni er meðal annars leitað svara við eftirtöldum spurningum: Hver hefur þróun afbrota verið á Íslandi á síðustu árum? Hvað einkennir íslensk fangelsi og fanga? Hvernig hafa Íslendingar brugðist við fíkniefnavandanum? Eru dómstólar vægari en almenningur? Hverjir eru gerendur kynferðisbrota gegn börnum? Hvert er umfang netbrota á Íslandi?

Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur kennt afbrotafræði við skólann í fjölda ára og sat í stjórn Norræna sakfræðiráðsins 2001 – 2015. Hann lauk doktorsprófi frá Missouri háskóla í Bandaríkjunum þar sem hann sérhæfði sig í afbrotafræði og réttarfélagsfræði. Helgi hefur einn eða í samstarfi við aðra gefið út fjölda verka, þar á meðal: Afbrot og Íslendingar (2000), Wayward Icelanders: Punishment, Boundary Maintenance and the Creation of Crime (2000) og Afbrot á Íslandi (2008). Auk þess hafa greinar birst víða í fræðaheiminum, meðal annars í European Journal of Criminology, Howard Journal of Crime and Justice, Criminology and Crime Prevention og Social Problems.

  • Blaðsíðufjöldi: 312
  • Útgáfuár: 2018
  • Fag: Félags- og afbrotafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK