Almanak Háskóla Íslands 2021

Ritstjórar: Þorsteinn Sæmundsson, Gunnlaugur Björnsson

Verknúmer: U202101

ISBN: 977-1022-852-00-7

2.990 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Út er komið Almanak fyrir Ísland 2021 sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 185. árgangur ritsins. Þorsteinn Sæmunds­son stjörnufræð­ing­ur og Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur hjá Raunvísind­a­stofnun Háskólans hafa samið og reiknað almanakið. Ritið er 96 bls. að stærð. Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyribærum á himni sem frá Íslandi sjást. Í almanakin­u eru stjörnukor­t, kort sem sýnir áttavitaste­fnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeims­ins, mælieining­ar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborg­um­ þeirra. Af nýju efni má nefna grein um gríðarlega fjölgun gervitungla sem breytt gæti ásýnd himinhvolfsins. Fjallað er um þá hnetti sólkerfisins sem flokkast sem dvergreikistjörnur og vikið að þeirri spurningu hvort líf sé á reikistjörnunni Mars. Loks eru í almanakin­u upplýsingar um helstu merkisdaga nokkur ár fram í tímann. Á heimasíðu almanaksins (almanak.hi.is) geta menn fundið margs konar­­ fróðleik til viðbótar, þar á meðal upplýsingar sem borist hafa eftir að almanakið fór í prentun. Á sölusíðu almanaksins (almanak.is) geta menn nálgast almanakið á rafrænu formi. Háskólaútgáfan annast sölu almanaksins og dreifingu þess til bóksala. ­Almanakið kemur nú út í 2300 eintökum, en auk þess eru prentuð 1200 eintök sem Þjóðvina­félagið gefur út sem hluta af almanaki sínu með leyfi Háskólans.

  • Blaðsíðufjöldi: 96

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK