Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 2022
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Almanak hins íslenska þjóðvinafélags byggir á Almanaki fyrir Ísland 2022 sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 148. árgangur ritsins. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans hafa samið og reiknað almanakið en Arnór Gunnar Gunnarsson ritstýrir árbók fyrir árið 2020.
Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyribærum á himni sem frá Íslandi sjást. Í almanakinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Af nýju efni má nefna grein um útþenslu alheimsins og grein um lengingu dagsins eftir vetrarsólhvörf. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga nokkur ár fram í tímann.
- Útgáfuár: 2022
- Efni: Almanak og árbók
- Blaðsíðufjöldi: 164
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.