Andvari 2021

Ritstjóri: Ármann Jakobsson

Verknúmer: U202110

ISBN: 977-0258-377-01-45

3.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Aðalgrein Andvara 2021 er æviágrip Hermanns Pálssonar prófessors í Edinborg. Höfundur er Torfi H. Tulinius, prófessor við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Torfi fjallar þar rækilega um helstu verk Hermanns á sviði norrænna fræða en hann var mikilvirkur fræðimaður og þýðandi. Í Andvara er að þessu sinni minnst þess að Hið íslenska þjóðvinafélag er 150 ára í ár og af því tilefni hefur Arnór Gunnar Gunnarssont sagnfræðingur tekið saman grein um síðustu 50 árin í sögu félagsins. Einnig ritar Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar grein í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá heimkomu handritanna til Íslands. Aðrar greinar í heftinu eru eftir fræðimennina Birnu Bjarnadóttur, Hauk Ingvarsson, Þórdísi Eddu Jóhannesdóttur, Kristínu Ingvarsdóttur, Guðrúnu Steinþórsdóttur, Hannes Pétursson, Svein Einarsson og Sigrúnu Júlíusdóttur. Ritstjóri Andvara er Ármann Jakobsson. Þetta er 146. árgangur Andvara en hinn 63. í nýjum flokki. Ritið er að þessu sinni 217 síður. Aðsetur ritsins eru nú hjá Háskólaútgáfunni í aðalbyggingu Háskóla Íslands.

  • Fag: Almennt
  • Blaðsíðufjöldi: 216
  • Útgáfuár: 2021

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK