Andvari 2023

Ritstjóri: Ármann Jakobsson

Verknúmer: U202304

ISBN: 977-0258-377-001-35

3.500 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Aðalgrein Andvara 2023 er æviágrip Guðrúnar Helgadóttur alþingismanns og rithöfundar. Sigþrúður Gunnarsdóttir fjallar um langan og fjölbreyttan feril Guðrúnar en ekki síst um skáldverk hennar, hugmyndir og list. Aðrar greinar eru eftir Sigrúnu Margréti Guðmundsdóttur, Ásdísi Egilsdóttur og Erlend Sveinsson, Jón Yngva Jóhannsson, Ingibjörgu Þórisdóttur, Jóhannes Helgason, Heimi Pálsson, Gunnar Kristófersson, Helgu Kress og Gísla Jökul Gíslason. Þær fjalla meðal annars um miðaldabókmenntir, sögu 20. aldar, íslenska leiklistar- og kvikmyndasögu, sögu fjölmiðlunar, sjónvarps og barnabóka og birt er efni sem ekki hefur áður sést á prenti. Auk þess eru birt fjögur erindi frá afmælismálþingi Hins íslenska þjóðvinafélags árið 2022, eftir Ólaf Ragnar Grímsson, Berglindi Ásgeirsdóttur, Peter Weiss og Maríu Elísabet Bragadóttur.

Ritstjóri Andvara er Ármann Jakobsson prófessor. Þetta er 148. árgangur Andvara en hinn 65. í nýjum flokki. Ritið er að þessu sinni um 240 síður. Aðsetur ritsins er hjá Háskólaútgáfunni í aðalbyggingu Háskóla Íslands.

 

  • Blaðsíðufjöldi: 236
  • Útgáfuár: 2023

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK