Arfur aldanna I & II
Höfundur:
Upplýsingar
Hér má kaupa bæði bindin saman á góðu verði. Handan Hindarfjalls er fyrsta bindi af fjórum í ritröðinni Arfur aldanna sem fjallar um fornaldarsögur, uppruna þeirra, útbreiðslu og einkenni. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af efnivið sagnanna í evrópsku samhengi utan Norðurlanda fram að ritunartíma þeirra á Íslandi á 13. og 14. öld. Einkum og sér í lagi er sótt í annála og aðrar fornar sagnfræðiheimildir en einnig söguljóð og fornminjar sem kunna að fela í sér myndrænar tilvísanir í söguefnið. Norðvegur er annað bindi af fjórum í ritröðinni Arfur aldanna sem fjallar um fornaldarsögur, uppruna þeirra, útbreiðslu og einkenni. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af efnivið sagnanna í norrænu samhengi fram að ritunartíma þeirra á Íslandi á 13. og 14. öld. Einkum er stuðst við fornminjar á borð við myndsteina, rúnasteina, útskurð í tré og vefnað en við sögu koma þó einnig sagnaritarar og skáld sem unnu með sagnaefnið í ritum sínum og kveðskap. Aðalheiður Guðmundsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands
- Blaðsíðufjöldi: 240 + 248
- Fag: Íslenskar bókmenntir, Fornaldarsögur, Sagnfræði
- Útgáfuár: 2021
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.