Ásýnd heimsins - Um listir og fagurfræði í hugmyndaheimi nútímans

Höfundur: Gunnar J. Árnason

Verknúmer: U201638

ISBN: 978-9935-23-141-3

6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hugmyndaheimur nútímans er stöðugt í deiglunni og erfitt að henda reiður á öllum þeim ólíku hræringum í vísindum, heimspeki, stjórnmálum og siðfræði sem móta hann. Hvaða þátt hafa listir gegnt í þeirri mótun? Standa listamenn hjá sem áhorfendur að sjónarspili samtímans eða eru verk þeirra þýðingarmikill áhrifavaldur í lífi okkar? Listamenn hafa sjálfir ekki skorast undan því að spyrja hvaða erindi listin eigi við samtímann og gengið lengst í gagnrýni og endurskoðun á hlutverki hennar og gildi. Að þessu leyti hafa þeir átt samleið með mörgum þeirra hugsuða sem hafa átt stóran hlut í að móta heimsmynd nútímans frá átjándu öld og fram undir lok tuttugustu aldar. Í bókinni er að finna aðgengilegan inngang að hugmyndum fjölda hugsuða og því hlutverki sem listir og fagurfræði hafa gegnt í hugmyndum þeirra. Allir hafa þeir tekist á við þá spurningu hvaða hlutverki listir gegni í tilveru mannsins og samfélaginu. Gunnar J. Árnason hefur skrifað um myndlist um árabil og kennt heimspeki lista og fagurfræði í Listaháskóla Íslands. Hann lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og School of Visual Arts í New York áður en hann sneri sér að heimspeki. Hann nam heimspeki við Háskóla Íslands og var í framhaldsnámi í heimspeki og fagurfræði lista í Cambridge háskóla á Englandi.

  • Blaðsíðufjöldi: 364
  • Útgáfuár: 2017
  • Fag: Heimspeki

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK