Baráttan um bjargirnar – Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags

Höfundur: Stefán Ólafsson

Verknúmer: U202227

ISBN: 978-9935-23-300-4

6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Þessi bók varpar nýju ljósi á þróun íslensks samfélags og lífskjara almennings. Hún sýnir hvernig vald og hagsmunir ólíkra stétta og átök þeirra um áhrif réðu för. Vinstri stjórnmálaöfl urðu ekki jafn áhrifamikil hér og á hinum Norðurlöndunum, en íslensk verkalýðshreyfing bætti það upp að hluta. Samt er íslenska velferðarríkið vanbúið, forréttindi fjármálaafla mikil og skattkerfið óréttlátt. Of margir búa við þrengingar þrátt fyrir mikla hagsæld í landinu. Þetta er grænbók um hvað má betur fara í samfélaginu.

Bók Stefáns Ólafssonar er ein skarpasta og merkileg- asta þjóðfélagsrýni sem ég hef séð um okkar samtíma. Stefán fer með okkur í ferðalag um sögu síðustu hundrað ára og sýnir hvaða þættir hafa mótað lífskjör Íslendinga: hagþróun, hugmyndafræði, valdakerfið og hagsmuna- barátta atvinnurekenda og launafólks. Bókin er skrifuð af yfirsýn og djúpri þekkingu á efninu en jafnframt af óvenjulegu hispursleysi um þær meinsemdir sem sett hafa mark sitt á samfélagið á undanförnum áratugum.

GUÐMUNDUR JÓNSSON, PRÓFESSOR Í SAGNFRÆÐI

Þetta er tímamótaverk og nauðsynlegt innlegg í upp- lýsta þjóðmálaumræðu. Skarpskyggn greining Stefáns Ólafssonar afhjúpar hvernig stéttabaráttan hefur mótað íslenskt samfélag fram á þennan dag – samfélag þar sem hagsmunir yfirstéttarinnar ráða mestu. Öflug verkalýðshreyfing hefur reynst mesta mótstöðuaflið í valdataflinu en betur má ef duga skal.“

GUÐMUNDUR ODDSSON, DÓSENT Í FÉLAGSFRÆÐI

Bókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka og tilnefningu til viðurkenningar Hagþenkis 2022.

  • Fag: Félagsfræði, Stjórnmálafræði
  • Blaðsíðufjöldi: 432
  • Útgáfuár: 2022

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK