Bókabörn

Höfundur: Dagný Kristjánsdóttir

Verknúmer: U201414

ISBN: 978-9979-54-929-1

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Barnabækur eru ekki einfalt bókmenntasvið og barnabókahöfundar eru ekki börn. Persónur barnabókanna eru búnar til af fullorðnum og endurspegla hugmyndir samtímans um það hvað börn séu eða ættu að vera, hvernig skuli koma fram við þau, hvort eigi að kenna þeim eða skemmta, refsa þeim eða tilbiðja þau, samsama sig þeim eða finnast þau alveg óskiljanleg. Í Bókabörnum eru hugmyndir manna um börn og bernsku raktar og sagt frá fyrstu bókunum sem íslenskum börnum voru ætlaðar. Hugmyndir manna um barnabókahöfundinn og hlutverk hans hafa breyst samhliða vaxandi athygli og áhuga á börnum. Fyrstu höfundarnir sem skrifuðu um og fyrir börn á Íslandi voru mótaðir af bernskuhugmyndum síns tíma og mótuðu sjálfir hugmyndir lesendi barna og komandi kynslóða um bernskuna. Þessir höfundar eru Jónas Hallgrímsson, Nonni, Sigurbjörn Sveinsson og Jóhann Magnús Bjarnason. Þeir skrifuðu fyrir börn og þess vegna voru þeir barngerðir, lesendur sáu þá í ljósi bóka sinna og bókabarna, en allir voru þeir flóknir og athyglisverðir persónuleikar, alþjóðlegir, dramatískir og gefnir fyrir gjörninga. Bernskan sem þeir lýsa er paradís, líf þeirra var það ekki.

  • Blaðsíðufjöldi: 302
  • Útgáfuár: 2015
  • Fag: Bókmenntafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK