Byggðafesta og búferlaflutningar á Íslandi

Ritstjóri: Þóroddur Bjarnason

Verknúmer: U202217

ISBN: 978-9935-23-285-5

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Búseta mótar líf fólks með margvíslegum hætti og skilyrðir dagleg samskipti við fjölskyldu, vini og nágranna, möguleika til náms og starfa og þá þjónustu og afþreyingu sem völ er á. Fyrir hvern og einn skiptir höfuðmáli að geta valið sér búsetu í samræmi við langanir sínar og þarfir en byggðafesta og búferlaflutningar hafa einnig djúpstæð áhrif á einstök samfélög.

Á 20. öld vöktu búferlaflutningar úr sveitum landsins mikla athygli sem og hraður vöxtur höfuðborgarsvæðisins um leið og umbylting varð á atvinnuháttum, lífskjörum og menningu á Íslandi. Á fyrstu tveimur áratugum 21. aldar hafa hins vegar orðið miklar breytingar á byggðafestu og búferlaflutningum hér á landi. Inn­flytjendum hefur fjölgað mikið í öllum landshlutum, stærri byggðakjarnar á Suðvesturlandi hafa vaxið hraðar en höfuðborgarsvæðið, búferlaflutningar til höfuðborgarsvæðisins frá fjarlægari landshlutum hafa farið minnkandi og rúmlega aldarlöng fólksfækkun í sveitum hefur stöðvast.

Í þessu riti birtast fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnið var á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við sérfræðinga við ýmsar íslenskar og erlendar háskólastofnanir. Veitt er yfirlit um svæðisbundna mannfjöldaþróun á Íslandi og mynstur búferlaflutninga innan lands og utan. Leitað er skýringa á langtímaþróun byggðarlaga og landsvæða og ljósi varpað á þá þætti sem áhrif hafa á ákvarðanir einstaklinga um að flytja á brott, vera um kyrrt eða snúa aftur heim, jafnframt því sem mat er lagt á framtíðarhorfur í búferlaflutningum og byggðaþróun.

  • Blaðsíðufjöldi: 392
  • Útgáfuár: 2022

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK