Ég er þinn elskari – Bréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur 1825–1832

Höfundur: Erla Hulda Halldórsdóttir

Verknúmer: U202307

ISBN: 978-9935-23-308-0

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

„Ég er þinn elskari“, skrifar Baldvin Einarsson undir bréf til Kristrúnar Jónsdóttur unnustu sinnar meðan hann bíður skips á Skagaströnd síðsumars 1828. Hann hafði komið heim frá Kaupmannahöfn þá um sumarið til að hitta hana og biðjast fyrirgefningar á svikum sínum. Baldvin og Kristrún voru trúlofuð þegar hann fór utan til náms í Kaupmannahöfn sumarið 1826.

Þar sveik hann hana í tryggðum og við tók flókið bréfasamband ástar, blekkinga og fyrirgefningar þar til hann dó árið 1833, eftir að hafa skaðbrennst í eldi.

Í ítarlegum inngangi er ástarsaga Kristrúnar og Baldvins rakin í gegnum bréfin sem hann skrifaði henni á tímabilinu 1825–1832 og sett í samhengi
við rannsóknir á ást og sendibréfum fyrri tíma.
Bréf Kristrúnar til Baldvins eru glötuð og því er hennar sjónarhorn og tilfinningar aðeins bergmál í bréfum hans, bréfum annarra, örfáum kvæðum og sögum um ást þeirra.

Bréf Baldvins eru hér birt orðrétt með skýringum en færð til nútímastafsetningar.

Erla Hulda Halldórsdóttir bjó bréfin til prentunar og skrifaði inngang.

 

Erla Hulda Halldórsdóttir er prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Hún er sérfræðingur í kvenna- og kynjasögu á nítjándu og tuttugustu öld en hefur einnig sinnt rannsóknum á sendibréfum, sagnaritun kvenna og sagnfræðilegum ævisögum. Erla Hulda hefur birt fjölda greina um rannsóknir sínar hér á landi og erlendis. Bók hennar Nútímans konur. Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850–1903 kom út árið 2011. Hún er jafnframt einn höfunda bókarinnar Konur sem kjósa. Aldarsaga sem kom út árið 2020.

****, Soffía Auður Birgisdóttir, Heimildin 15. des. 2023

  • Blaðsíðufjöldi: 248
  • Útgáfuár: 2023
  • Fag: Sagnfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK