Elítur og valdakerfi á Íslandi

Höfundur: Gunnar Helgi Kristinsson

Verknúmer: U202114

ISBN: 978-9935-23-262-5

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Elítum er oft stillt upp sem óvinum alþýðunnar í pólitískri orðræðu samtímans. Þeim er lýst sem þröngum hópum fólks sem ráði raðum sínum í pólitískum skúmaskotum á kostnað hins hreinlynda og óspillta almennings. Popúlistar, bæði á hægri og vinstri væng stjónmálanna, líta svo á að átakaflöturinn milli elíta og almennings sé sá sem mestu skiptir í nútímastjórnmálum. En hvað er í raun vitað um elíturnar? Mynda þær samhentan kjarna sem stýrir samfélaginu á bakvið tjöldin eða samanstanda þær bara af fólki sem hefur náð góðum árangri á sínu sviði? Í þessari bók er þróun valdakerfanna á Íslandi rakin frá því á nítjándu öld og gögn birt um samsetningu og starfshætti elítuhópa á mismunandi sviðum samfélagsins. Aðferðafræðin tekur mið af norrænum elíturannsóknum en er löguð að íslenskum aðstæðum. Niðurstöður höfundar benda til þess að íslenska valdakerfið hafi þróast frá ættarveldi á nítjándu öld til flokksræðis á þeirri tuttugustu en hins vegar megi á þeirri tuttugustu og fyrstu greina valdakerfi í mótun sem hafi aukin einkenni margræðis. Höfundur bókarinnar er dr. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann er höfundur fjölda bóka, bókakafla og tímaritsgreina um stjórnmál og stjórnmálafræði. Meðal sérsviða hans eru stjórnmálaflokkar, opinber stefnumótun og tengsl stjórnmála og stjórnsýslu.

  • Útgáfuár: 2021
  • Blaðsíðufjöldi: 182
  • Fag: Stjórnmálafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK