Fátækt og fúlga

Ritstjórar: Sigurður Gylfi Magnússon, Jón Ólafur Ísberg

Verknúmer: U201607

ISBN: 978-9935-23-115-4

4.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Út er komin nítjánda bókin í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar en röðin hóf göngu sína árið 1997 og er unnin á vegum Miðstöðvar einsögurannsókna í Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Fátækt á Íslandi hefur verið íslenskum ráðamönnum hugleikið viðfangsefni allt frá landnámi. Umræðan fékk aukið vægi á dögum upplýsingarinnar og hefur löngum verið áhersluatriði í rökræðum manna á milli síðan. Árið 1902 var tekin saman að undirlagi nefndar Alþingis yfirgripsmikil skrá yfir alla þá einstaklinga á Íslandi sem þegið höfðu af sveit það árið og töldust þannig til þurfalinga. Í þessari bók er fjallað um starf þingnefndarinnar, skráin birt í heild sinni og hver urðu viðbrögð þingheims við tillögum hennar. Hver voru örlög fátæks fólks á þessum tíma og hvernig tókst það á við fordóma samtíðar sinnar? Höfundar bókarinnar glíma við álíka spurningar þegar þeir fjalla um fátækt á Íslandi frá ýmsum hliðum.

  • Blaðsíðufjöldi: 430
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: Sagnfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK