Fléttur IV – Margar myndir ömmu

Ritstjórar: Sigrún Alba Sigurðardóttir, Sólveig Anna Bóasdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Irma Erlingsdóttir

Verknúmer: U201606

ISBN: 978-9935-23-112-3

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Fjórða hefti ritraðar RIKK er tileinkað ömmum og langömmum. Í greinunum eru sagðar sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi og ljósi varpað á hugmyndaheim þeirra, stöðu og aðstæður og framlag til þróunar nútímasamfélags á Íslandi. Fræðimenn af óíkum sviðum, s.s. sagnfræði, guðfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og bókmenntafræði, setja lífshlaup formæðra sinna í samhengi við samfélagsgerðina sem, hvað sem borgaralegum réttindum leið, takmarkaði möguleika þeirra til þáttöku í opinberu lífi og um leið til sjálfstæðis og frelsis. Jafnframt er þáttur þeirra í að endurmóta ríkjandi hugmyndir um kvenleikann og samfélagslegt hlutverk sitt metinn og spurt hvaða tækifæri konur höfðu til þess að hafa áhrif í samfélaginu, bæði með starfi sínu inn á við, í þágu heimilis, en ekki síður út á við, til dæmis í gegnum félagasamtök og kvenfélög sem voru í hverri sveit. Greinarnar draga upp fjölbreytta mynd af lífi kvenna á Íslandi um aldamótin 1900 og fram á miðja 20. öld með því að tefla saman kenningarlegri nálgun og persónulegri frásögn. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ritar formála að bókinni.

  • Blaðsíðufjöldi: 316
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: sagnfræði, guðfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og bókmenntafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK