Fléttur V – #MeToo
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Fimmta hefti ritraðar RIKK er tileinkað #MeToo og baráttu kvenna gegn áreitni og ofbeldi. Í bókinni nálgast höfundar efnið frá fjölbreytilegu sjónarhorni. #MeToo er sett í sögulegt samhengi innan kvennahreyfingarinnar. Fjallað er um hvernig ótti kvenna við kynferðisofbeldi birtist í íslenskum bókmenntum. Frásagnir kvenna sem störfuðu sem ráðskonur á síðari hluta 20. aldar af kynbundnu ofbeldi eru teknar til skoðunar. Sjónum er beint að því viðhorfi sem konur mæta í heilbrigðis kerfinu og fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á heilsu þeirra. Auk þess er vikið að hugmyndum ungra karlmanna um kynheilbrigði og #MeToo. Rýnt er í sálrænar afleiðingar margþættrar mismununar í garð fatlaðra kvenna og það kerfislæga misrétti sem #MeToo - sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi afhjúpa. Spurt er hvort #MeToo - hreyfingin bjóði upp á möguleika á breyttum mannskilningi og lausn undan hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar og rýnt er í mótstöðuna gegn #MeToo.
Fléttur er ritröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Fléttum er ætlað að kynna niðurstöður jafnréttisrannsókna og koma á framfæri fræðilegum greinum um kvenna og kynjafræði, femínisma og jafnréttismál í víðum skilningi.
- Fag: Kynjafræði
- Blaðsíðufjöldi: 272
- Útgáfuár: 2020
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.