Framtíðarmúsík

Ritstjóri: Kristín Valsdóttir

Verknúmer: U201806

ISBN: 978-9935-23-180-2

4.500 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Síðastliðna tvo áratugi hefur orðið mikil gerjun og endurnýjun á sviði tónlistarmenntunar. Nýjar aðferðir og ný viðmið hafa rutt sér rúms í tónlistar- og tónmenntakennslu og tónlistarskólar leitast eftir auknu samstarfi við ólík skólastig. Þessi bók inniheldur tólf greinar sem byggðar eru á nýjum rannsóknum og þróunarverkefnum tengdum tónlistarmenntun og tónlistarmiðlun. Bakgrunnur höfunda er margvíslegur auk þess sem þeir starfa á ólíkum sviðum tónlistarmenntunar. Þeir eru tónmenntakennarar í grunnskóla, hljóðfærakennarar við tónlistarskóla og kennarar við Listaháskóla Íslands. Þannig eru greinahöfundar ekki einungis fulltrúar ólíkra skólaforma heldur einnig ólíkra skólastiga. Bókin er gefin út á vegum Rannsóknarstofu í listkennslufræðum, sem starfar undir hatti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, í samstarfi Háskólaútgáfuna. Fullyrða má að hún sé fyrsta bók sem gefin er út á íslensku um náms- og kennsluhætti í tónlistarnámi og fengur fyrir alla þá sem áhuga hafa á tónlistarmenntun á Íslandi.

  • Blaðsíðufjöldi: 250
  • Útgáfuár: 2018
  • Fag: Listkennslufræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK