Frelsi, menning, framför

Höfundur: Úlfar Bragason

Verknúmer: U201722

ISBN: 978-9935-23-159-8

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Frelsi, menning framför fjallar hins vegar um allar þær heimildir sem Jón Halldórsson lét eftir sig: kvæði, greinar, dagbók, æviágrip, bréf og ljósmyndir og er auk þess reist á öðru sem tekist hefur að grafa upp um lífshlaup hans. Jón var meðal fyrstu Íslendinganna sem fluttu til Fyrirheitna landsins og bjó lengst af í Nebraska. Bókin gerir grein fyrir þeim hugmyndum sem vesturfaranir höfðu um Ameríku, þær forsendur sem Jón Halldórsson taldi sig hafa til frambúðar á Íslandi og væntingar sem hann hafði með því að létta heimdraganum. Fjallað er um bréfaskriftir Jóns, áhrif sem hann gæti hafa haft til þess að ættingjar hans og vinir fylgdu í kjölfar hans og samskipti hans við landa sína vestanhafs. Þá er rætt hvernig Jón Halldórsson mat lífshlaup sitt á gamals aldri, aðlögun hans að nýjum heimkynnum og viðhorf hans til gamla landsins. Í bókinni Atriðum ævi minnar, sem kom út hjá Háskólaútgáfunni 2005, var birt úrval eftirlátinna bréfa, greina og ævisögubrot Jóns Halldórssonar (1838–1919) í stað þeirrar frásagnar sem hann ætlaði að rita um líf sitt eftir að hann fluttist frá Stóruvöllum í Bárðardal vestur um haf 1872. Textinn átti að vera eins konar (sjálfs)ævisaga í klippiformi.

  • Blaðsíðufjöldi: 294
  • Útgáfuár: 2017
  • Fag: Sagnfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK