Gripla XXVIII

Ritstjórar: Emily Lethbridge , Rósa Þorsteinsdóttir

Verknúmer: U201738

ISBN: 978-9979-654-44-5

4.500 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Gripla 2017 inniheldur átta fræðigreinar (fjórar á íslensku og fjórar á ensku) og eina textaútgáfu. Viðfangsefni greinanna er fjölbreytt og tilheyrir mörgum sviðum: þjóðfræði, bókmenntafræði, handritafræði, svo og sögu íslensks máls. Ritrýndar greinar eru eftir Romina Werth og Aðalheiði Guðmundsdóttur, sem fjalla um framlag kvenna til söfnunar þjóðsagna á Austurlandi; Joanne Shortt Butler, sem skrifar um sagnapersónuna Þorstein Kuggason og ímyndunarafl höfunda Íslendingasagna; Þórdísi Eddu Jóhannesdóttur, sem skoðar gerðir Jómsvíkinga sögu í miðaldahandritum; Rebecca Merkelbach, sem notar hugtök um skrímsli til að túlka Grettis sögu Ásmundarsonar og einkenni Grettis og annarra útlaga í Íslendingasögum; Aðalstein Hákonarson, sem fjallar um ritun og framburð orða eins og fé, mér og sér í ljósi athugasemda Brynjólfs Sveinssonar frá árinu 1651; Stefan Drechsler, sem skoðar myndskreytingar handrita á vestanverðu Íslandi á 13. öld og í upphafi 14. aldar; og Natalie M. Van Deusen, sem gefur út texta kvæðisins „Sprundahrós“, varðveittan í pappírshandritunum ÍB 850 8vo, JS 255 4to og JS 589 4to, ásamt inngangi. Í heftinu er að auki grein um samtöl í Íslendingasögum eftir Theodore M. Andersson. Þar má einnig finna grein eftir Má Jónsson um þeta-brotið (AM 162 B fol. θ) og glataða Gullskinnu-handritið af Njáls sögu.

  • Blaðsíðufjöldi: 262
  • Útgáfuár: 2017

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK