Gripla XXXI

Ritstjórar: Haukur Þorgeirsson, Elizabeth Marie Walgenbach

Verknúmer: U202030

ISBN: 978-9979-654-58-2

3.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Í Griplu 2020 eru tíu ritrýndar greinar, þrjár á íslensku, ein á norsku og sex á ensku. Michael MacPherson og Yoav Tirosh nota aðferðir stílmælinga til að varpa ljósi á gerðir Ljósvetninga sögu. Þórdís Edda Jóhannesdóttir fjallar um Bósa sögu yngri, Mikael Males skrifar um aldur og eðli Fóstbræðra sögu, Rósa Þorsteinsdóttir fjallar um hlut Magnúsar Grímssonar í þjóðsagnasöfnun á 19. öld, Philip Lavender fjallar um konunginn Timur í íslenskum heimildum, Leiv Olsen tekst á við málfræðilegar röksemdir í aldursgreiningu Eddukvæða, Klaus Johan Myrvoll túlkar vísu í Gísla sögu í samhengi við íslenskt samfélag á 10. öld, Anna Katharina Heiniger skrifar um líkamlega áverka í Íslendingasögum, Christopher Crocker fjallar um blindu í Þorsteins sögu hvíta og íslensku miðaldasamfélagi og Árni Heimir Ingólfsson fjallar um sléttsöng í lútherskum sið á Íslandi. Ritstjórar eru Elizabeth Marie Walgenbach og Haukur Þorgeirsson.

  • Blaðsíðufjöldi: 336

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK