Handbók í lyflæknisfræði 4. útgáfa

Verknúmer: U201515

ISBN: 978-9935-23-83-6

7.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Fjórða útgáfa Handbókar í lyflæknisfræði hefur tekið miklum breytingum frá síðustu útgáfu sem kom út árið 2006 og hefur notið mikilla vinsælda. Höfuðmarkmið með útgáfu bókarinnar er að styðja við skynsamlega nálgun og meðferð helstu sjúkdóma og vandamála sem heyra til lyflækninga. Umfjöllunin hefur í mörgum tilvikum sérstaka tilvísun í aðstæður hérlendis. Handbók í lyflæknisfræði hefur þegar öðlast traustan sess sem leiðbeinandi fræðirit og ætti að nýtast breiðum hópi lesenda, svo sem lyflæknum, heilsugæslulæknum, almennum læknum og læknanemum auk fagfólks innan annarra heilbrigðisstétta. 

„Eina bók sinnar tegundar á íslensku og stenst fyllilega samanburð við hliðstæðar erlendar bækur í fremstu röð. Ómissandi.“ - Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflæknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands.

„Þessi grundvallarbók í lyflæknisfræði hefur ekki einvörðungu skírskotun til lækna og læknanema, heldur til allra heilbrigðisstétta og áhugafólks um heilsu og sjúkdóma. Að hafa slíkt rit á íslensku er mikill fengur.“  - Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og forseti læknadeildar Háskóla Íslands.

  • Blaðsíðufjöldi: 498
  • Útgáfuár: 2015
  • Fag: Heilbrigðisvísindi

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK