Háskólapælingar

Höfundur: Páll Skúlason

Verknúmer: U201435

ISBN: 978-9935-23-058-4

3.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hvers konar stofnanir eru háskólar? Hvað einkennir þróun þeirra nú á dögum? Hver á að vera meginstefna þeirra? Hvernig á að stjórna þeim? Í bók þessari er tekist á við þessar mikilvægu spurningar. Í henni eru valdar greinar, erindi og ræður um stöðu og starf íslenskra og erlendra háskóla sem eiga erindi til allra sem láta sig varða þróun æðri menntunar. Færð eru rök fyrir nauðsyn róttækrar endurskoðunar á stefnu og starfsemi háskóla eigi þeir að gegna hlutverki sínu sem skyldi. Páll Skúlason (f. 1945) er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi frá Kaþólska háskólanum í Louvain árið 1973. Páll var rektor Háskóla Íslands 1997–2005.

  • Blaðsíðufjöldi: 260
  • Útgáfuár: 2014
  • Fag: Heimspeki

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK