Heilnæmi jurta og hollusta matar

Höfundar: Sigmundur Guðbjarnason, Margrét Þorvaldsdóttir

Verknúmer: U201735

ISBN: 978-9935-23-166-6

6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hjónin Margret Þorvaldsdóttir og Sigmundur Guðbjarnason hafa löngum verið áhugasöm um þær forvarnir gegn sjúk- dómum sem finna má í náttúrunni. Í þessari bók hafa þau tekið saman margvíslegan fróðleik um slíka eiginleika jurta og ávaxta – Sigmundur frá sjónarhóli vísinda og Margret í ljósi sögunnar. Í grænmeti og ávöxtum er að finna fjölmörg efni sem styrkja varnir líkamans gegn ýmsum sjúkdómum og geta gagnast í baráttunni við sýkla. Hér fjallar Sigmundur um þennan varnar- og lækningamátt og gefur góð ráð. Hann greinir einnig frá þeim hættum sem manninum stafar af hormónatruflandi efnum sem berast í líkamann með mat og snyrti- og hreinlætisvörum. Margret fjallar annars vegar um uppruna og þróun læknis- fræðinnar á Vesturlöndum og hversu veglegan sess jurta- lækningar skipuðu lengst af innan hennar. Einnig skoðar hún gamlar íslenskar heimildir um jurtalækningar en þær gefa til kynna að menn hafi öldum saman búið yfir góðri þekkingu á nytjum náttúrunnar hér á landi. Margret Þorvaldsdóttir starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu og skrifaði einkum um neytendamál, bæði neyslu- og heilsutengd, og var þar með vikulega dálka um „rétt dagsins“. Hún hefur áður gefið út tvær matreiðslubækur. Sigmundur Guðbjarnason nam efnafræði við Tækniháskólann í München og stundaði vísindastörf við Læknaskóla Wayne State University í Detroit. Hann byggði upp nám í efnafræði við Háskóla Íslands og rannsóknir í efnafræði, matvælafræði og lífefnafræði við Raunvísindastofnun. Sig- mundur var rektor Háskóla Íslands 1985–1991. Því næst hóf hann rannsóknir á lækningajurtum og stofnaði sprotafyrirtækið SagaMedica árið 2000 ásamt öðrum.

  • Blaðsíðufjöldi: 206
  • Útgáfuár: 2018
  • Fag: Sagnfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK