Hug/raun - Nútímabókmenntir og hugræn fræði

Höfundur: Bergljót Kristjánsdóttir

Verknúmer: U201534

ISBN: 978-9935-23-096-6

4.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hvers vegna skiptir hægra ennisblaðið máli þegar talað er um verk Sigfúsar Daðasonar? Má það vera að landslag hafi mótað hugarstarf manna? Hvað veldur því að fólk er alltaf að „lesa“ látæði og svipbrigði annarra og geta sér til um hvað þeir séu að hugsa eða hvað þeir ætli sér að gera? Hvernig hræra ljóð við tilfinningum lesenda eða fylla þá illum grun? Og hvað gerist eiginlega í kollinum á skáldum og rithöfundum þegar þau eru fyndin eða írónísk? Það eru spurningar af þessu tagi sem fengist er við í greinasafninu Hug/raun: Nútímabókmenntir og hugræn fræði. Greinarnar, tólf að tölu, snúast flestar um ljóð og frásagnir – þar af eina myndasögu – frá 20. og 21. öld. Í sömu mund eru þær kynning á hugrænum fræðum, ekki síst hugrænni bókmenntafræði, sem hefur vaxið mjög síðustu tuttugu ár eða svo, og fjallað er sérstaklega um í einni greinanna. Í bókinni er reynt að varpa nýju ljósi á úrval nútímabókmennta með því að beina sjónum að vitsmunum mannskepnunnar sem draga dám af þeirri menningu sem hún býr við hverju sinni. Við greiningu verkanna er því sótt til lífvísinda ekki síður en mannvísinda, rætt um taugafrumur í sömu mund og endurtekningar, minnst á apa í tengslum við samlíðan og sagt frá atferli kvenfugla til að skýra stöðu konu í skáldahópi. Höfundur bókarinnar er Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.

  • Blaðsíðufjöldi: 316
  • Útgáfuár: 2015

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK