Hugsað með Aristótelesi

Ritstjórar: Eiríkur Smári Sigurðarson, Svavar Hrafn Svavarsson

Verknúmer: U201822

ISBN: 978-9935-23-062-1

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Aristóteles er án efa einn áhrifamesti heimspekingur sögunnar. Hann er frægasti nemandi Platons, kennari Alexanders mikla, einn af höfundum heimsmyndarinnar sem hin nýju vísindi og upplýsingin sneru niður. Einnig er hann höfundur dyggðasiðfræðinnar sem hefur haft mikil áhrif á siðfræðikenningar frá miðri 20. öld og fram á okkar daga. Hann er líka þekktur fyrir kenningar um að sumar manneskjur séu fæddir þrælar, að börn geti ekki verið hamingjusöm og að konur séu í eðli sínu vanskapaðir karlar. Í þessu riti eru átta nýjar greinar um heimspeki Aristótelesar sem eiga uppruna sinn á málþingi sem haldið var í tilefni af 2400 ára fæðingarafmælis hans. Greinarnar fjalla um fjölbreytta þætti í frumspeki, siðfræði og skáldskaparlist Aristótelesar. Að auki er í bókinni birt ritgerð eftir Grím Thomsen um Aristóteles, en fyrri hluti ritgerðarinnar hefur þegar verið birtur í bókinni Hugsað með Platoni.

  • Blaðsíðufjöldi: 216

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK