Inngangur að skipulagsrétti
Höfundur:
Upplýsingar
Inngangur að skipulagsrétti er fyrsta heildstæða ritið sem fjallar um íslenskan skipulagsrétt sem sjálfstætt réttarsvið. Í bókinni er meðal annars fjallað um skipulagsskyldu, stjórnvöld skipulagsmála, tegundir skipulagsáætlana, málsmeðferð við gerð þeirra, grenndarkynn ingu, framkvæmdaleyfi, bótaábyrgð og endurskoðun ákvarðana. Sérstakur kafli er helgaður lögmæltum skipulagsskilyrðum og sjónarmiðum sem er að finna í öðrum lögum en skipulagslögum. Einnig er fjallað um ákveðna lykildóma Hæstaréttar, hundruð úrskurða úrskurðarnefnda og álit umboðsmanns Alþingis. Í bókinni er einnig lagaskrá ásamt bendiskrá. Með nokkrum undantekningum er efni hennar miðað við gildandi rétt 1. janúar 2016. Bókin er ætluð þeim sem stunda rannsóknir og kennslu í skipulagsrétti á háskólastigi en gagnast einnig lögmönnum, lögfræðingum, opinberum stofnunum, sveitarfélögum, fyrirtækjum og almenningi.
- Blaðsíðufjöldi: 344
- Útgáfuár: 2017
- Fag: Lögfræði
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.