Kurteisleg kvæði og dýrlegar diktanir - Bókmenntagreinar og handritamenning á sautjándu öld
Höfundur:
Upplýsingar
Í íslenskum handritum frá síðari öldum má finna texta af ýmsu tagi sem fólk skrifaði upp, lag og hlustaði á sér til yndis, fróðleiks, uppbyggingar og dægrastyttingar. Textarnir eru varðveittir á handritasöfnum jafnt innanlands sem erlendis en stór hluti þeirra hefur ekki verið gefinn út á prenti og er því aðgengilegur þorra manna. Bókmenntirnar eru að mestu leyti afurð lærdóms og klassískra mennta sem bárust til landsins með fornmenntastefnunni en áhrif frá ritum lútherskra guðfræðinga, einkum þýskra og danskra, eru einnig áberandi í bókmenntunum.
Hér er prentað úrval fræðigreina sem Þórunn Sigurðardóttir hefur birt í tímaritum og bókum á undanförnum árum sem sýna þetta glöggt. Áhersla er lögð á félagslegt umhverfi skálda og viðtakenda bókmenntanna, tilurð þeirra, dreifingu og varðveislu, og samspil texta og umhverfis eða samhengi textans við það samfélag sem hann er sprottinn úr. Sýnt er fram á að í bókmenntunum er hægt að fá vísbendingar um daglegt líf og tilfinningar, bæði skálda og samtímamanna þeirra, jafnt úr veraldlegum sem trúarlegum textum. Með sumum greinunum fylgja útgáfur á áður óbirtu efni. Greinunum er skipt í fimm kafla eftir meginviðfangsefni: Menntun og bókmenning; Handritamenning; Höfundareignun; Konur í bókmenntum síðari alda; Bókmenntagreinar á sautjándu öld.
- Fag: Íslenskar bókmenntir
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.