Lækningalán Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarstað

Ritstjórar: Jón Torfason, Ásgeir Böðvarsson, Brynja Grétarsdóttir

Verknúmer: U202609

ISBN: 978-9935-23-367-7

6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Jón Jónsson (1772–1866) var prestur í Stærri-Árskógi og á Grenjaðarstað. Þótt hann væri ekki læknislærður fékk hann leyfi til að stunda lækningar í sinni sókn árið 1812 sem var endurnýjað af konungi 1816 og náði þá yfir Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Fólk víðar að leitaði þó til hans, bæði úr Skagafirsði og Múlasýslum og jafnvel lengra að. Varðveist hafa átta ítarlega færðar dagbækur hans um Læknisverkin og er fjöldi sjúklinga á ári um 400. Þar er greint frá nafni sjúklings, nákvæmar lýsingar á sjúkdómnum og hvernig séra Jón reyndi að bæta úr meinunum. Dagbækurnar eru frá 1816 til 1831. Hér eru gefnar út tvær þeirra, önnur frá 1816–1818 og hin frá 1827. Hér er um einstaka heimild að ræða frá fyrri hluta 19. aldar.

  • Fag: Sagnfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK