Latína er list mæt - Um latneskar menntir á Íslandi

Höfundur: Sigurður Pétursson

Verknúmer: U201437

ISBN: 978-9935-23-064-5

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Latína er list mæt er úrval greina Sigurðar Péturssonar um latínumenntir íslendinga á tímabilinu 1550-1800. Latínukveðskapur íslenskra höfunda frá þessum öldum ber skýran vott um viðamikla þekkingu á alþjóðlegum hefðum, hvort sem er á sviði lofkvæða, þakkarljóða, brúðkaupskvæða, erfiljóða eða trúarlegs kveðskapar. Greinarnar fjalla um viðfangsefnið í víðu samhengi, allt frá almennu yfirliti um nám í latneskri málfræði og latínumenntun kvenna til endursköpunar klassískra goðsagna í kvæðagerð skálda sem mörg eru gleymd. Einstök latínukvæði eru gefin út ásamt þýðingum, skýringum og æviágripi höfunda. Sögulegt samhengi kvæðanna er útskýrt og sýnt hvernig fagurfræði fornaldarinnar endurómar í skáldamáli þeirra. Bókinni fylgir skráin Index carminum ab Islandis latine compositorum sem geymir brag- og bókfræðilegar upplýsingar um latínukvæði íslenskra skálda í aldanna rás.

  • Blaðsíðufjöldi: 416
  • Útgáfuár: 2014
  • Fag: Málvísindi

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK