Leikum, lærum, lifum

Höfundar: Anna Magnea Hreinsdóttir, Kristín Karlsdóttir

Verknúmer: U201616

ISBN: 978-9935-23-125-3

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Í opinberri menntastefnu á Íslandi er lögð áhersla á að leikur sé helsta námsleið leikskólabarna. Um leið er leikurinn frjáls og hefur tilgang í sjálfum sér.
Í þessari bók er greint frá starfendarannsóknum sem gerðar voru hér á landi til að varpa ljósi á hvernig leikskólakennarar geti náð því markmiði að tengja leik við námssvið leikskólans og grunnþætti menntunar sem sett eru fram í aðal- námskrá leikskóla. Lýst er starfendarannsóknum í fimm leikskólum en þær snerust um vellíðan, sköpun, lýðræði, sjálfbærni og læsi. Einnig er nánari umfjöllun um flæði í leik og námi barna og sköpun í skólastarfi, auk jafnréttis í leikskólum. Hér er enn fremur að finna umfjöllun um gildi þess að setja fram námsmarkmið og huga að hlutverki kennara og annars starfsfólks í að móta leik sem aðferð í námi og kennslu, í þeim tilgangi að stuðla að námi barna og auka áhrif þeirra á eigið nám og námið hvert hjá öðru. Bókin er ætluð kennaranemum, kennurum og starfsfólki í leik- og grunnskólum, þeim sem móta stefnu í skólamálum og öðrum sem láta sig menntun yngstu borgaranna varða.

  • Blaðsíðufjöldi: 271
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: Menntavísindi

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK