Lífssögur ungs fólks – Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar

Höfundur: Sigrún Aðalbjarnardóttir

Verknúmer: U201824

ISBN: 978-9935-23-195-6

9.000 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform
  • Hluti

Upplýsingar

Fátt er okkur mikilvægara en uppeldi og menntun barna og ungmenna. Í þessari bók beinist athyglin að því mikilvæga hlutverki uppalenda að hlúa að vellíðan og velferð æskunnar, bæði henni og samfélaginu til heilla í samtíð og framtíð. Bókin er á margvíslegan hátt nýjung á innlendum og erlendum vettvangi. Hún byggist á viðamikilli langtímarannsókn höfundar þar sem kannaðir eru ýmsir þroskaþættir ungmenna frá upphafi unglingsára fram á þrítugsaldur. Sérstök áhersla er þar lögð á að skoða hvernig uppeldisaðferðir foreldra geta haft áhrif á samskiptahæfni ungmenna og líðan, sjálfstraust þeirra og trú á eigin sjálfstjórn, námsgengi og áhættuhegðun allt að átta árum fram í tímann. Raktar eru áhugaverðar lífssögur fimm ungmenna frá því þau eru á sextánda ári og fram á fertugsaldur. Þar lýsa þau samskiptum sínum við þá sem þeim eru nánir: foreldra, vini, sambúðarfólk og eigin börn. Styrkleikar þeirra eru dregnir fram sem og uppeldissýn þeirra, meðal annars þau gildi sem þau vilja rækta með börnum sínum.

Lífssögur ungs fólks er bók sem á brýnt erindi við okkur öll. Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir er prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars við Háskóla Íslands fyrir „lofsvert framlag til rannsókna“ og Saman- hópsins fyrir „vel unnin fræðistörf og gagnlegar rannsóknir í þágu foreldra og barna“. Auk þess hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu „fyrir störf í þágu uppeldisvísinda og menntunar“.

,,Að kanna lífssögur ungs fólks er öllum þjóðfélögum afar gagnlegt. Það hefur dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir nú gert í framhaldi af bók sinni um virðingu og umhyggju og eykur þannig enn skilning á okkur sjálfum og því samfélagi sem við erum saman um að mynda." -Vigdís Finnbogadóttir

  • Fag: Menntavísindi
  • Útgáfuár: 2019
  • Blaðsíðufjöldi: 565

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK