Ljóðmæli 5 – Hallgrímur Pétursson

Verknúmer: U202316

ISBN: 978-9979-819-71-5

5.500 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Fimmta bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar lítur hér dagsins ljós. Það hefur að geyma lausavísur og nokkur lengri kvæði. Vísurnar fjalla oft um hversdagslega hluti eins og mat, drykk og matarneyslu en stundum um misskiptingu veraldlegra gæða. Sumar lýsa barnaleikjum, aðrar eru heillaóskir og einnig eru hér gátur í vísnaformi. Lausavísur eru oft tengdar ákveðnu atviki og bundnar vissum stað og stund. Þær hafa yfirleitt varðveist í munnlegri geymd löngu áður en þær voru skrifaðar upp enda eru lausavísur Hallgríms yfirleitt varðveittar í yngri handritum en annar kveðskapur hans. Texti hvers kvæðis er prentaður stafréttur eftir aðalhandriti eða prentaðri útgáfu en orðamunur úr öðrum handritum birtur neðanmáls. Gerð er rækileg grein fyrir varðveislu hvers kvæðis auk þess sem handritunum sem við sögu koma er lýst í sérstakri skrá. Margrét Eggertsdóttir, Karl Óskar Ólafsson og Kristján Eiríksson önnuðust útgáfuna.

  • Fag: Ljóð, íslenska
  • Útgáfuár: 2023

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK