Menningararfur á Íslandi

Ritstjórar: Ólafur Rastrick , Valdimar Tr. Hafstein

Verknúmer: U201530

ISBN: 978-9935-23-066-9

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform
  • Kaflar

Upplýsingar

Í bókinni spyrja fjórtán höfundar gagnrýninna spurninga um menningararf, hvernig hann er notaður, af hverju og til hvers: Torfbæir og timburhús, handrit og hárlokkar, bátar og búningar, súrmatur og skyr, söguskilti og sögufrægir kvenskörungar. Hvernig stendur á því að sumu gömlu er hampað sem ómetanlegum menningararfi á meðan annað er léttvægt fundið og leyft að drabbast niður? Höfundarnir lýsa menningararfi sem sameiningar- og sundrungarafli, hugtaki sem fólk tekur til handargagns, hreyfiafli er drífur áfram athafnir þess, sjónarhorni á daglegt líf og umhverfi, hugsjón, auðlind og þrætuepli.

Ritstjórar eru Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Hafstein, en aðrir höfundar eru þjóðfræðingar, mannfræðingar, safnafræðingar, sagnfræðingar og bókmenntafræðingar: Áki Guðni Karlsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Guðmundur Hálfdanarson, Helgi Þorláksson, Jón Þór Pétursson, Karl Aspelund, Katla Kjartansdóttir, Kristinn Schram, Marta Guðrún Jóhannesdóttir, Sigríður Helga Þorsteinsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson og Tinna Grétarsdóttir.

  • Blaðsíðufjöldi: 372
  • Útgáfuár: 2015
  • Fag: Þjóðfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK