Menntun í félagsmenningarlegu ljósi

Höfundur: Hafþór Guðjónsson

Verknúmer: U202533

ISBN: 978-9935-23-356-1

6.900 kr. 5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Bók þessi geymir úrval pistla og greina sem Hafþór Guðjónsson skrifaði á starfsferli sínum, fyrst sem efnafræðikennari við Menntaskólann við Sund en síðar sem kennari á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Bókin skiptist í sex hluta:

Nám og hugsun - Læsi og merkingarsköpun - Samræðan- Starfendarannsóknir - Kennaramenntun - John Dewey

Bókin ber yfirskriftina Menntun í félagsmenningarlegu ljósi. Í slíku ljósi er maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum. Að læra, frá þessum bæjardyrum séð, er fyrst og fremst fólgið í því að eiga samskipti við aðra og taka þátt í athöfnum með öðrum. Þannig lærum við ekki aðeins til verka heldur líka að tala við aðra og hugsa með öðrum og þannig verðum við ,,viti bornar verur". ,,Homo" verður ,,homo sapiens". Þetta er kjarninn í félagsmenningarlegri sýn á manninn að mati Hafþórs og litar með afgerandi hætti það efni sem birtist lesandanum í þessari bók.

  • Útgáfuár: 2026
  • Blaðsíðufjöldi: 378
  • Fag: Menntavísindi

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK