Opna svæðið: Tímaritið Birtingur og íslenskur módernismi

Höfundur: Þröstur Helgason

Verknúmer: U201621

ISBN: 978-9935-23-239-7

5.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Opna svæðið: Tímaritið Birtingur og íslenskur módernismi eftir Þröst Helgason varpar ljósi á tímaritið Birting sem kom út á árunum 1955-1968 og gegndi lykilhlutverki við að innleiða módernisma í íslenskar bókmenntir og listsköpun á tímabilinu. Opna svæðið er fyrsta bókin sem gefin er út um þetta mikilvæga tímarit. Birtingur tilheyrir flokki módernískra eða lítilla tímarita sem settu svip sinn á tilurð módernisma víða um heim en hafa hingað til verið órannsökuð hér á landi. Birtingi var ætlað að þjóna sem vettvangur fyrir kynningar á nýjum alþjóðlegum straumum, endurskoðun á viðteknum hefðum og lifandi umræður um nútímabókmenntir og listir. Um leið gefur bókin innsýn í margbrotin átök innan íslensks menningarvettvangs á þessum mikla umbrotatíma. Útgefandi: Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands og Háskólaútgáfan.

  • Blaðsíðufjöldi: 439

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK