Rannsóknir – Handbók í aðferðafræði

Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir

Verknúmer: U201919

ISBN: 978-9935-437-91-4

11.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform
  • Kaflar

Upplýsingar

Það á við um allar fræðigreinar að rannsóknir eru forsendur framfara. Þetta rit mun án efa stuðla að áframhaldandi framþróun rannsókna á Íslandi á flestum fræðasviðum. Í því er að finna kafla um viðfangsefni sem tengjast rannsóknum á margvíslegan hátt, t.d. um mikilvægi vísindasögunnar við hönnun og framkvæmd rannsókna, grunnatriði vinnubragða í fræðilegum skrifum, grunnþætti í siðfræði rannsókna og siðanefndir ásamt kafla um siðferðilegar áskoranir í rannsóknum með félagslegum jaðarhópum. Þá má nefna kafla um viðtöl í eigindlegum og megindlegum rannsóknum og gerð rannsóknaráætlunar og styrkumsókna.

Í bókinni eru einnig 12 kaflar um eigindlegar rannsóknaraðferðir, svo sem um réttmæti og áreiðanleika og úrtök og úrtaksaðferðir í eigindlegum rannsóknum, og um hinar ýmsu eigindlegu aðferðir, svo sem orðræðugreiningu, fyrirbærafræði, rýni- hóparannsóknir, vettvangsrannsóknir, starfenda- og þátttökurannsóknir, grundaða kenningu og sögulegar rannsóknir ásamt köflum um narratífu og innihaldsgreiningu. Jafnframt eru í bókinni 12 kaflar um megindlegar rannsóknaraðferðir, svo sem um réttmæti og áreiðanleika og úrtök og úrtaksaðferðir í megindlegum rannsóknum, um algengar aðferðir í lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og kafli um líftölfræði. Einnig er hér fjallað um spurningakannanir, framskyggnar slembirannsóknir, faraldsfræði- legar rannsóknir, einliðasnið og tilfellarannsóknir. Þá má nefna kafla um notkun lífeðlisfræðilegra mælinga í rannsóknum og um gerð og þróun mælitækja, um heimildasamantektir sem rannsóknaraðferð, rannsóknir með blönduðum aðferðum og um notkun rannsókna í kenningarsmíði.

Að lokum er umfjöllun um ritun tímaritsgreina, útgáfu vísinda- og fræðigreina í opnum aðgangi, um veggspjaldagerð og um gildi þess að gera rannsóknarniðurstöður kunnar. Um mörg þessi efni hefur lítið sem ekkert verið ritað á íslensku áður og er þar því um brautryðjendastarf að ræða. Flest efnin hafa víða skírskotun og handbókin mun því án efa gagnast nemum, iðkendum og fræðimönnum á flestum fræðasviðum.

Í handbókinni eru 40 kaflar eftir 46 höfunda. Þótt hér sé um viðamikla handbók að ræða er hún mjög aðgengileg enda er henni ætlað að vera í senn kennslubók og uppflettirit.

  • Efni: Aðferðafræði, félagsvísindi, rannsóknir
  • Blaðsíðufjöldi: 742
  • Útgáfuár: 2021

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK