Rannsóknir í viðskiptafræði I

Ritstjórar: Runólfur Smári Steinþórsson, Þórhallur Örn Guðlaugsson, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson

Verknúmer: U201926

ISBN: 978-9935-23-233-5

5.995 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Viðskiptafræði er fjölbreytt fræðigrein innan félagsvísinda með margvísleg tengsl við aðrar greinar. Þessi bók, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, hefur að geyma niðurstöður ólíkra rannsókna sem endurspegla margbreytileika fræðigreinarinnar. Lesendur fá innsýn í viðamikinn fræðaheim sem spannar meðal annars nýsköpun, opinbera stjórnsýslu, mannauðsstjórnun, sjávarútveg, utanríkisþjónustu, stjórnun, iðnað, orku, verslun og þjónustu. Í Rannsóknum í viðskiptafræði I leiða saman hesta sína fjölmargir kennarar Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands ásamt sérfræðingum úr atvinnulífinu. Allir kaflarnir eru byggðir á eigin rannsóknum höfunda og hafa verið ritrýndir. Þetta er fyrsta bókin í nýrri ritröð um rannsóknir í viðskiptafræði og á hún erindi við alla þá sem vilja kynna sér það efni, ekki síst stjórnendur fyrirtækja og hjá hinu opinbera. Bókin ætti einnig að höfða til nemenda í viðskiptafræði og tengdum greinum.

  • Blaðsíðufjöldi: 300
  • Fag: Viðskiptafræði
  • Útgáfuár: 2020

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK