Rannsóknir í viðskiptafræði V
Ritstjórar:
Upplýsingar
Tilgangur ritraðarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði er að koma á framfæri áhugaverðum rannsóknum á bæði fræðilegum og hagnýtum þáttum viðskiptafræða. Hér er það fimmta bókin sem kemur út og sem fyrr eru allir kaflarnir ritrýndir. Kaflarnir í þessari bók eru 10 talsins og alls 20 höfundar sem segja frá rannsóknum á sjálfbærni og stjórnarháttum, stjórnun á ólíkum sviðum, frumkvöðlastarfi og nýsköpun, orðspori í ferðaþjónustu, húsnæðismarkaði og orlofsíbúðamarkaði, trausti í bankastarfsemi og á samspili virks náms og námsárangurs. Höfundar koma víða að: frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Bifröst, Háskólanum á Akureyri sem og úr atvinnulífinu. Ritröðin hefur skapað sér fastan sess meðal fræðimanna, nem- enda, stjórnenda og sérfræðinga. Í bókunum fimm hafa alls verið birtir 60 kaflar. Efnið er afar fjölbreytt og á erindi við öll þau sem vilja kynna sér viðfangsefni viðskiptafræðinnar, hvort sem er í fræðilegum eða hagnýtum tilgangi.
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 250
- Fag: Viðskiptafræði
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.